Maður má bara ekki bregða sér úr landi þá verður bara allt
vitlaust á blogginu
Já svo að ég byrji nú á byrjuninni....þá fór ég með OO til
ofnæmislæknis um daginn til að fá frekari upplýsingar um fisk og
baunaofnæmið sem hann er búin að vera með lengi. Það fór ekki betur
en svo að læknirinn gerði ofnæmispróf á honum sem kom svona líka
illa út. Hann er með ofnæmi fyrir hnetum, möndlum, soya, fisk og
baunum. Þannig að ég var send strax út í apótek að kaupa
adrenalínpenna sem á helst að fylgja honum hvar sem hann er. Þetta
er frekar mikið mál og maður þarf að upplýsa fólk vel sem er í
kringum hann, eins og á leikskólanum og svona. Þetta kom mér mikið
á óvart en svo þegar ég hugsa til baka að þá útskýrir þetta
ýmislegt.
Ég er nú ekki ennþá búin að sjá þessa sjónvarps-performance hjá
mér en auðvitað hef ég náttúrulega alveg verið með þetta. Setti upp
sparisvipinn og lúkkaði mjög gáfulega þegar sjónvarpsvélarnar mættu
hérna með bankastjóranum en hann var hjá Jóni Ársæli í Sjálfstæðu
fólki á sunnudaginn.
Ég sá náttúrulega ekki þáttinn af því að ég fór til London á
sunnudaginn og kom aftur á miðvikudagskvöldið. Þetta var alveg
frábær ferð. Mér fannst London æðislegt en fólk á mjög erfitt með
að trúa því að þetta var mín fyrsta ferð þangað. En deff ekki sú
síðasta. Við notuðum allann aukatíma sem var nú ekki mikill en við
vorum jú á ráðstefnu alla dagana, til að versla og svo var
náttúrulega wænað og dænað öll kvöld og sona
Ég var því frekar eftir mig í gær þegar ég mætti í vinnu. Er
aðeins að koma til en er rosa fegin að það er föstudagur í dag.
Helgin verður róleg hjá mér en Au-pairinn hjá mér er að fara út að
skemmta sér á morgun með félögunum....gæti sko vanist því að hafa
Ingvar svona heima, hann er svo duglegur þessi elska, var bara einn
heima með strákana í þrjá daga....spáiði í það. Við erum því miður
ekki að fara á Krókinn um helgina....en stefnum þangað sem allra
fyrst.
Góða helgi elskurnar mínar